Ólafía í Manchester...!!
Hæ hó ;)
Jæja nú er loksins komin tími á blogg... er búin að bíða og bíða eftir því að geta bloggað en þið vitið hvernig þetta er... verður að líða rúmur mánuður á milli ;););)
En jæja þið viljið örugglega fá einhverjar fréttir... þið sem að lesið Michaels síðu eruð náttúrlega búin að lesa einhverjar fréttir af okkur...:D
Það helsta í fréttum er að nú erum við fjölskyldan stödd í Manchester hjá Möggu og co... það var ekkert smá gaman að hitta þau öll aftur...;) Krakkarnir eru að aðlagast hvort öðru enþá, held það megi orða það þannig ;) En annars eru þau voða duglega að leika sér saman inná milli... enda ekkert nema fyrirmyndar frændsystkin ;);) Við erum svo búin að fara í nokkrar búiðir hérna úti... Ekkert smá gaman að fara í matvörubúð hérna úti því það er allt svo ódýrt hérna miðað við heima... okkur er bara farið að kvíða fyrir að versla í matinn á Íslandi þegar við förum heim aftur... þetta er reyndar svona með hérna úti.. svo miklu mikilu ódýrara heldur en heima.... hver einasta búð hérna er bara einsog bónus.. verðið kemur alltaf á óvart... við erum svo að stefna á það að skoða einhverja garða og söfn eftir jólin... en ég segi ykkur fréttir af því þegar þar að kemur...
Jólin eru svo alveg að bresta á... hérna er jóladagur aðaldagurinn... en við ætlum samt að opna pakkana á aðfangadag ;);) krakkarnir þola varla meiri bið greyjin... Við förum svo út að borða í hádeginu á aðfangadag...náttúrlega með Möggu og þeim og svo held ég að Geir bróðir Balla og Tamsin konan hans ætli að koma með líka... það verður gaman að prufa að fara út að borða hérna í Englandinu ;) Ég set svo örugglega myndir frá aðfangadagskveldi og öllum pökkunum inná síðuna hans Michaels einhverntíman eftir jólin... og ætli ég láti ekki fylgja með myndir sem teknar hafa verið hérna í útlandinu ;)
jæja er orðin svo hrykalega þreytt þannig ég heyri í ykkur einhverntíman aftur eftir jólin ;);)
Hitt og þetta...
Góðan daginn
Ég ákvað að koma með eina færslu fyrir ykkur þótt það sé nú ekki mikið að frétta....
Við Michael erum búin að vera hjá tendó á sandi í 3 daga vegna þess að netið datt út hérna hjá okkur og ég þurfti að læra undir próf sem gekk nú ekkert alltof vel þar sem þetta er náttúrufræði, ég á nefninlega mjög erfitt með að muna þetta...
En jæja okkur var boðið í afmæli til hennar Katrínar Júlíu um helgina, skvísan bara orðin 3 ára til hamingju með stelpuna Kitta og Danni og takk fyrir okkur og allar góðu kræsingarnar... ummm...
Michael tók sig reyndar til í afmælinu og potaði eina kökuna í klessu, já svona litlum guttum klæjar stundum mikið í puttana
Arnór kom svo í land í gær og við fórum í mat hjá tengdó útá sand í partýskinku og með því... ummm var mjög gott.
Í dag átti ég svo að fara í náttúrufræðipróf og eitthvað ensku test en Michael greyið er með svo mikla ælupest að það er hrikalegt, hann ælir svo mikið greyið að maður dauðvorkennir honum litla greyinu... Hann er reyndar mjög hress miðað við allt saman litla greyið og er líka duglegur að sofa, hann er einmitt sofandi núna hérna í sófanum hjá mér.. Það verður bara að koma í ljós hvernig fer með prófið en ég vona allavega að ég fái sénst til að taka það
En við skulum vona að þessi ælupest gangi bara fljótt yfir...
En jæja nóg í bili...ætla að halda áfram að gera það sem ég var að gera sem er nákvæmlega ekki neitt ![]()
![]()
jæja...
Það er bara allt gott að frétta héðan úr Ólafsvíkinni... lífið gengur bara alltaf sinn vana gang hjá litlu fjölskyldunni í Hjarðartúninnu!! Arnór nánast alltaf úti á sjó, Michael á leikskólanum og ég að vinna og læra
Michael er rosalega ánægður á leikskólanum og er farinn að tala alveg rosalega mikið frá því að hann byrjaði þar, maður sér bara dagamun á orðaforðanum hans... hann er svo duglegur litli grallarinn!! Hann er meira að segja farinn að segja okkur frá því hvað krakkarnir á leikskólanum heita, samkvæmt fóstrunum er hann rosalega góður drengur, borðar rosalega vel og gengur í allt með áhuga og ekkert í vandræðum með að kynnast krökkunum og svara fyrir sig ef þess þarf (datt nú reyndar ekkert annað í hug, hehe). En við foreldrarnir eru mjög stolt af drengnum okkar!!
Arnór er svo búin að vera í bænum alla þessa viku í slysavarnaskóla sjómanna, það þurfa víst allir sjómenn að fara á svona námskeið sem er bara gott mál, því það veitir ekki af að hafa allt öryggi á hreinu á svona vinnustað, allir þurfa að vita þetta og hjálpast að ef þess þarf sem maður vonar náttúrlega að þurfi bara aldrei!!! en allur er varinn góður samt
Ég og Michael fórum svo í bæinn í dag, vorum svo heppinn að fá far með Friðriki og Alexanderi... en við vorum sko að fara í bæinn til að ná í nýja bílinn okkar... jamm þið heyrðuð hvað ég sagði, the isfjörð famili er búin að fá sér bíl ;) nissan x-trail elegance, 2003 árgerð, ek 52000km, sjálfskiptur, krókur, leður og topplúga ;) Ekker smá lukkuleg með bílinn... sannkallaður draumabíll sko!! eða einsog Michael lærði að segja á leiðinni heim "rosa kaggi" hehe... mamman var að tyggja þetta í hann á leiðinni ;) hihi!! Og meira að segja fylgdi svo bílnum 50.000kr bensínkort frá esso eða ego ;) það var nú ekki verra sko, enda bensín mjög dýrt á Íslandi í dag og virðist ekkert vera að lækka sko
Annar er maður alltaf svo busy, ef maður er ekki að vinna þá er maður að læra og nema á milli 4 og 8 þá á Michael mig alla
En jæja held að þetta sé komið nóg í bili.... er að sofna hérna við tölvuna... heyrumst síðar og góða helgi
kv. Fian
Löngu komin tími á blogg hjá kellu!!!
Hæ hó.. sumir ekki að standa sig í blogginu en við skulum ekki vera að nefna nein nöfn samt.. þið vitið um hvern ég er að tala er haggi??
en jæja.. víst að sumarið er á enda verður maður duglegri í blogginu...
Magga og börnin þrjú komu í heimsókn 18. ágúst alla leið frá Manchester city og voru hérna á klakanum í 2 vikur.. flugu aftur út bara í dag... ohh hvað það var gaman að hitta þau loksins aftur eftir heilt ár... maður er líka strax farin að sakna þeirra... en jæja stefnum á það að hittast fljótlega aftur.....
Litli guttinn minn er svo byrjaður á leikskólanum Kríubóli á Hellissandi og það gengur bara mjög vel... Michael er mjög ánægður með að fá fullt af leikfélögum og komast aðeins út frá mömmu gömlu... en hann er samt alltaf jafn glaður að sjá hana aftur og stekkur í fangið á henni þegar hún kemur og nær í snáðan sinn... ohh yndislegur þessi snúður
mér finnst nú hálf tómlegt að vera heima þegar hann er á leikskólanum... enginn til að leika við og enginn til að hlæja og fíflast með...
Arnór er nýkomin heim úr laxveiði og fór svo útá sjó klukkan 8 í kvöld... hann var voða stoltur af stóra laxinum sem hann fékk í veiðiferðinni sem verður mjög líklega hent á grillið um leið og kallinn kemur í land... ummm... fæ vatn í munninn...
Skólinn er svo byrjaður aftur þannig maður er kominn á fullt að læra... núna er ég í sálfræði 303, íslensku 303, íslensku 643, uppeldisfræði 103, náttúrufræði 113 og ensku 212 held að ég sé ekki að gleyma neinu... nú er bara að standa sig vel einsog venjulega og stefna að því að útskrifast eftir 3-4 annair í viðbót;);)
en jæja.. .ég ætla að halda áfram að læra.. kem með fréttir flótlega aftur;)
Fían
Verslunarmannahelgin 2006
Hæ aftur!!
Gleymdi að segja ykkur frá verslunarmannahelgini!!
Á fimmtudeginum skellti Arnór sér norður í skagafjörð í 3 daga veiðiferð með: Hansa, Emma, Tedda, Magga og Gumma!! semsagt algjör kallaferð svo ég nennti sko ekki með og ákvað að skella mér bara með Evu og Þyri systir norður á Akureyri og var þar með þeim fram á laugardag en þá kom Arnór til mín og við brunuðum svo heim á sunnudeginum... gullmolin var hjá mömmu og Magga alla helgina og skemmti sér alveg konunglega... þau fóru útí bústað, tóku rúnt yfir jökulhálsin og keyrðu svo fyrir jökul, kíktu á stapan og alla þessa staði í leiðinni ásamt Kötlu frænku sem var í heimsókn hjá mömmu yfir helgina
Foreldrarnir skemmtu sér líka mjög vel í veiðiferð og á einni með öllu!! við vorum nú samt hálf dösuð eftir allan þennan akstur
Á leiðinni heim frá Akureyri stoppuðum við á Háafelli hjá Gunnu og Finn en þar var ég í sveit þegar ég var yngri... það var ekkert smá gaman að hitta þau aftur það er svo langt síðan ég hef komið þangað... ég fór auðvitað og heilsaði uppá vini mína þá Reyk og Blæ (sem eru hestar sko)... ummm hvað mig langaði að taka þá bara með mér heim.. ég sakna þeirra ekkert smá mikið!!! en jæja kannski að maður skelli sér bara í leitirnar í haus þá get ég hitt þá aftur
en jæja... nóg í bili.. ég ætla að halda áfram að hlaða inn myndum á barnaland hjá guttanum!
Ný bloggsíða;)
Góða kveldið![]()
Fían ákvað að skoða einhver ný bloggsvæði og eftir mikla skoðunarferð þá leist mér best á þetta hérna, en jæja það er allt og ekkert í fréttum á þessum bænum
Einsog þið flest vitið erum við búin að festa rætur í Ólafsvík þar sem við vorum að kaupa okkur krúttlega í búð hérna í Hjarðartúninu með bílskúr og alles... þannig að ef Arnór er eitthvað leiðinlegur þá er hægt að henda honum þangað svona öðru hvoru, hehe smá djók
en jæja það sem er fleira í fréttum er að Arnór er komin með nýja vinnu og það sem betra er hærri tekjur
en nú er hann orðin kokkur á Hringnum, togari sem rær frá Grundarfirði og honum líkar bara mjög vel enda snildar kokkur þessi elska
en jæja þið viljir væntanlega fleiri fréttir svo ég held bara áfram... ekki nóg með það að Arnór hafi fengið kokkaplássið og við fundið okkur íbúð þá datt Michael líka inná leikskólapláss á Hellissandi og byrjar þar núna í lok ágúst, við vorum komin með í magan því hann átti ekki að komast inn fyrr en næsta haus sem sagt 2007 og þá væri guttinn næstum 3 ára en jæja það virðist allt vera að smella hjá okkur
mömmunni og pabbanum finnst nú skrítið að litli strákurinn þeirra sé að fara á leikskóla hann sem er svo lítill enþá hehe!! en eitt vantar þó enn og það er vinna fyrir mig!!!! ég er gjörsamlega búin að leita útum allt ég veit bara ekki hvernig þetta endar eiginlega????? en jæja ég ætla ekki að fara að pirra mig á því.. ég hlýt að detta inná eitthvað fyrr eða síðar
en jæja nóg af fréttum í bili... bestu kveðjur til ykkar allra og verið nú dugleg að commenta og kvitta í gestabókina mína!!!